Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009
26.1.2009 | 23:58
Orðin árinu eldri
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.1.2009 | 01:31
Vér mótmælum allir!!
Ég fór niður á Austurvöll í kvöld og tók þátt í mótmælunum. Stöðugur trommusláttur og köllin: Vanhæf ríkisstjórn! yljuðu mér um hjartaræturnar (bálið yljaði mér líka vel). Mér þótti leitt að sjá eggin, sóðaskapinn og rúðubrotin í gamla Alþingishúsinu, get aldrei tekið undir skemmdarverk. En samstaðan sem þarna var, skilaboðin sem hömruð voru aftur og aftur - svona eiga mótmæli að vera! Þarna var fólk á öllum aldri og þjóðfélagsstigum, frægir, ungir, æstir og gamlir. Geir og co. eru í svipaðri stöðu og föruneyti hringsins var í myrkviðum Moriu. Fastir á dimmum stað og trommusláttur berst úr djúpinu. Bomm bomm bommm kæra ríkisstjórn!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.1.2009 | 01:01
Harðsperrur frá helvíti og góður árangur Hildu um helgina
Enn ein góð helgi er liðin en sumar afleiðingar hennar eru enn að fylgja mér. Um helgina var haldið Stórmót ÍR og á laugardagsmorguninn mætti ég eiturhress (eða svona..) til að vinna við mótið. Ég lenti í hóp við eina langstökksgryfjuna og fékk það hlutverk að mæla stökkin. Í okkar hlut komu 8 ára og yngri strákar og stelpur og 9-10 ára stelpur. Þetta var þrælgaman, frábært að sjá jafnvel pínulítil kríli gefa allt sitt í stökkin Þar sem ég var að mæla þurfti ég að beygja mig niður í hvert skipti sem barn stökk og hvert þeirra fékk 3 stökk. Þetta voru hátt í 80 krakkar svo að ég beygði mig niður svona ca. 240 sinnum á 1,5 tímum. Afleiðingarnar létu ekki á sér standa. Fæturnir á mér voru eins og deig þegar ég ætlaði heim um kl. 11 um morguninn. Ég átti erfitt með að fara niður stiga án stuðnings og það var sárt að setjast niður. Ekki tók betra við á sunnudaginn. Lærin loguðu af harðsperrum og ég varla komst út úr húsi án þess að æpa og veina. Mánudagurinn var síst skárri enda þurfti ég í sýnatökur og klöngraðist upp og niður brekkur með tilheyrandi sársauka. Gaman að vita hvað morgundagurinn ber í skauti sér....
En ! Þó mamman sé aumingi er dóttirin það ekki. Hildan mín keppti á Stórmóti ÍR og á Reykjavík International. Hún fékk gull í kúluvarpi og stangarstökki á Stórmótinu auk bronsins í hástökki. Hún keppti líka í hástökki á Reykjavík International og varð í 5.-6. sæti. Hún bætti sig um heila 16cm í stangarstökkinu. ÍR-ingar fengu alls 70 verðlaun á Stórmótinu, listann má sjá hér.
Ég fór líka á frábær námskeið hjá Hugleiðslu- og friðarmiðstöð um helgina. Við lærðum um The Wheel of Life og hugtök eins og karma og impermanence. Alveg frábær fræðsla sem vakti mann verulega til umhugsunar um það sem maður er að gera í sínu lífi. Takk fyrir þetta Dagmar Vala
En nú er kominn tími til að endurhita hitapokann og setja hann á aum læri ! Góðar stundir !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.1.2009 | 16:57
Heilbrigðisfulltrúi í Eurovision
Heilbrigðisfulltrúar eru ekki bara fólk með sjúklegan áhuga á rusli. Einar vinnufélagi minn á lag í undankeppni Eurovision og verður það að keppa um að komast áfram annað kvöld. Lagið heitir Glópagull og er hresst lag í Eurovision stílnum, getið hlustað á það hér. Þetta er besta lagið í keppninni, gefið því atkvæði Við heilbrigðisfulltrúarnir stöndum með okkar manni og ætlum að koma honum áfram !!! Áfram Einar !!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.1.2009 | 00:07
Ljúfa líf
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.1.2009 | 01:02
Froskar og ég fara ekki vel saman
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.1.2009 | 23:11
Sólskinsdrengurinn - frábær mynd
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2009 | 23:11
Áramótin 2008-9
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2009 | 03:16
Búin að snúa sólarhringnum við!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.1.2009 | 17:54
Annáll ársins 2008
Nú árið er liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur aftur. Árið 2008 var fínt ár þrátt fyrir hrun þjóðarbúsins og slík smáatriði. Hér er árið í stórum dráttum:
Ferðalög: Ég sló öll met í ferðalögum á þessu ári, fór fimm sinnum til útlanda og er það persónulegt met. Fyrsta ferðin var til Amsterdam í mars, fór á ráðstefnu um hávaðamál fyrir vinnuna. Það var afar gaman að fá tækifæri til að skoða Amsterdam sem er skemmtileg borg með fallegum gömlum byggingum. Næsta ferð var til Búdapest með vinkvennahópnum, áttum reyndar fyrst að fara til Vilnius en þeirri ferð var aflýst og fengum við þessa sem uppbót. Vart þarf að taka fram að ferðin var frábær og við skemmtum okkur konunglega. Fórum í baðhús, skoðuðum borgina og sigldum á Dóná. Borðuðum góðan mat og versluðum. Ekki leiðinlegt! Næsta utanlandsferð var frekar óvænt. Ég fór til Kaupmannahafnar í júní í atvinnuviðtal. Því miður fékk ég ekki starfið en ferðin var greidd fyrir mig með dagpeningum og alles svo ég fékk þrjá skemmtilega daga í minni gömlu heimaborg sem ég eyddi í skemmtun með vinum mínum. Í júlí var svo komið að aðalferð ársins en þá fórum við Hilda til Marmaris í Tyrklandi með Svanhildi og hennar fjölskyldu. Þetta var yndisleg ferð í alla staði. Við upplifðum líka nokkur ævintýr þarna, jarðskjálfti upp á 6,3 á Richter við Rhodos hristi hótelið okkar duglega einn morguninn og í ferð um Gökövaflóa lenti ég í því að selur hoppaði upp á bakið á mér þegar við stoppuðum við eina baðströndina! Við Hilda prófuðum líka köfun í fyrsta sinn og eftir byrjunarörðugleika hjá mér var þetta frábærlega gaman. Ljúf ferð til fallegs lands, langar að fara þarna aftur síðar. Síðasta utanlandsferð ársins var svo í lok nóvember til Boston með Júllu vinkonu. Borgin sú er mjög falleg og gaman að skoða, maturinn þar er líka frábær. Við fengum Thanksgiving máltíð á veitingastað og skemmtilega skoðunarferð um borgina, hvoru tveggja innifalið í ferðina. Við skruppum og skoðuðum nornabæinn Salem á eigin vegum. Frábær ferð en betra hefði verið að dollarinn hefði ekki verið í sögulegu hámarki á meðan við vorum þarna.. Hildan mín var líka á faraldsfæti í ár, auk Tyrklandsferðarinnar fór hún til Svíþjóðar og keppti í frjálsum og lauk árinu með skíðaferð til Frakklands með pabba sínum. Ég ferðaðist líka aðeins innanlands, fór með Jakob vin minn í skoðunarferðir um suður- og vesturland og skrapp í barnsráns ferð með Gunnellu vinkonu til Snæfellsness. Hugsa nú að 2009 verði minna um ferðalög..
Fjölskyldan og heimilið: Enn bættist í dýrahópinn minn á árinu. Dvergfroskurinn Daníel og bardagafiskurinn Baldur slógust í hópinn svo nú eru 6 gæludýr á heimilinu. Eitt stykki engispretta kom örsnöggt inn í líf okkar en hvarf fljótt á braut á ný. Aðalævintýrið á heimilinu var samt endurnýjun baðherbergisins. Ekkert olli jafn miklu hugarangri, stressi og veseni fyrir húsfreyjuna í Skipholti 51. Um miðjan júní var keypt inn það sem þurfti af tækjum inn á baðherbergið en leitin af flísunum reyndist verða löng og ströng. Loks dugði það að taka Sif vinkonu með í leiðangur og eins og svo oft áður fann ég það sem ég leitaði að. Nóvember og desember fóru svo í vinnuna og eftir blóð, svita, ryk og tár á ég nú flottasta baðherbergi hérna megin Alpafjalla. Eina sem eftir er að finna er baðskápur en hann finn ég örugglega á nýja árinu :) Einkadóttirin heldur áfram að standa sig vel í skólanum og íþróttum, hóf nú í haust nám í 10. bekk og er í fjarnámi í ensku á framhaldsskólastigi. Hún vinnur með skólanum á Subway í Kringlunni, farið þangað til að fá góða þjónustu. Af öðrum fjölskyldumeðlimum er allt gott að frétta.
Óhöpp: Auðvitað var árið ekki óhappalaust, ég verandi ég og allt saman. Nokkrar tréplötur fóru að fjúka um á bílastæðinu fyrir utan vinnuna og að sjálfsögðu rispaðist bílinn minn í þeim atgangi. Ekki var langt liðið frá því að ég fékk það tjón viðgert þegar ungur drengur renndi sér aftan á bílinn þegar ég var að keyra í Mosfellsbænum. Blessaður bíllinn fór í klessu að aftan en ég mætti galvösk með hann á sama réttingaverkstæði og áður og fékk hann fínan tilbaka. Ekki var raunum bílsins lokið þar sem þakið var rispað í bílageymslunni í vinnunni. Það fékkst ekki bætt vegna stæla í tryggingafélaginu, grrr. Hvað um það, ég er amk í heilu lagi þrátt fyrir þessi óhöpp en það er nú fyrir öllu.
Vinir og vinna: Mikil frjósemi var hjá spilaklúbbnum á þessu ári. Þrír meðlimir af sex fjölguðu sér og var afraksturinn tveir drengir og ein stúlka, gullfalleg öll sömul. Ekki dró þetta nú úr spilagleði klúbbsins sem heldur ótrauður áfram og hefur nú eignast nýtt uppáhaldsspil, Bohnanza, þó svo að Carcassone sé spilað reglulega. Ég vinn enn við það sama en vinnustaðurinn breytti bæði um nafn og heimilisfang á árinu. Ég vinn nú fyrir Umhverfis- og samgöngusvið og er það til húsa í Höfðatorgi, Borgartúni 12-14. Flutningurinn í það hús og allt sem á eftir fylgdi er efni í heila bók. Kínversku lyfturnar sem virka bara endrum og eins, undarlega rafkerfið og umhverfisstjórnunarkerfið sem annað hvort steikir okkur eða frystir.. bara stuuuð! Við höfum nú lifað af heilt ár í húsinu svo þetta hlýtur nú að verða fínt á nýja árinu.
Já, almennt var þetta fínt ár og ég ætla bara að mæta 2009 með bjartsýni. Takk fyrir samfylgdina 2008 !
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)