Harðsperrur frá helvíti og góður árangur Hildu um helgina

Enn ein góð helgi er liðin en sumar afleiðingar hennar eru enn að fylgja mér.  Um helgina var haldið Stórmót ÍR og á laugardagsmorguninn mætti ég eiturhress (eða svona..) til að vinna við mótið.  Ég lenti í hóp við eina langstökksgryfjuna og fékk það hlutverk að mæla stökkin.  Í okkar hlut komu 8 ára og yngri strákar og stelpur og 9-10 ára stelpur.  Þetta var þrælgaman, frábært að sjá jafnvel pínulítil kríli gefa allt sitt í stökkin Smile  Þar sem ég var að mæla þurfti ég að beygja mig niður í hvert skipti sem barn stökk og hvert þeirra fékk 3 stökk.  Þetta voru hátt í 80 krakkar svo að ég beygði mig niður svona ca. 240 sinnum á 1,5 tímum.  Afleiðingarnar létu ekki á sér standa.  Fæturnir á mér voru eins og deig þegar ég ætlaði heim um kl. 11 um morguninn.  Ég átti erfitt með að fara niður stiga án stuðnings og það var sárt að setjast niður.  Ekki tók betra við á sunnudaginn.  Lærin loguðu  af harðsperrum og ég varla komst út úr húsi án þess að æpa og veina.  Mánudagurinn var síst skárri enda þurfti ég í sýnatökur og klöngraðist upp og niður brekkur með tilheyrandi sársauka.  Gaman að vita hvað morgundagurinn ber í skauti sér....

En ! Þó mamman sé aumingi er dóttirin það ekki.  Hildan mín keppti á Stórmóti ÍR og á Reykjavík International. Hún fékk gull í kúluvarpi og stangarstökki á Stórmótinu auk bronsins í hástökki.  Hún keppti líka í hástökki á Reykjavík International og varð í 5.-6. sæti.  Hún bætti sig um heila 16cm í stangarstökkinu.  ÍR-ingar fengu alls 70 verðlaun á Stórmótinu, listann má sjá hér.

Ég fór líka á frábær námskeið hjá Hugleiðslu- og friðarmiðstöð um helgina.  Við lærðum um The Wheel of Life og hugtök eins og karma og impermanence.  Alveg frábær fræðsla sem vakti mann verulega til umhugsunar um það sem maður er að gera í sínu lífi.  Takk fyrir þetta Dagmar Vala Smile

En nú er kominn tími til að endurhita hitapokann og setja hann á aum læri ! Góðar stundir !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Guðrún og Halldór Pálmar

Sorrý hvað ég er leiðinleg elskan mín en var virkilega enginn annar sem gat tekið að sér að beygja sig svona og var virkilega ekkert annað sem þurfti að gera sem reyndi aðeins minna á þinn viðkvæma skrokk! Þú verður að passa betur upp á þig hjartað mitt þó að það sé leiðinlegt! Þér líður nú alveg nógu illa í skrokknum samt!

Helga Guðrún og Halldór Pálmar, 21.1.2009 kl. 21:53

2 Smámynd: Helga Guðrún og Halldór Pálmar

Já og til hamingju með stelpuna þína, hún er náttúrulega bara frábær!

Helga Guðrún og Halldór Pálmar, 21.1.2009 kl. 21:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband