Engin íbúð - en skemmtilegt grímuball

Það tókst ekki að sannfæra erfiðu systurina yfir helgina.  Svo nú er íbúðin góða komin úr sölu og hvorki ég né annar getur keypt hana.  Ég fór inn á fasteignavefinn í dag og það er nákvæmlega EKKERT spennandi í mínum verðflokki til sölu.  Ef ég næði í þessa leiðindakonu myndi ég ekki fara um hana mjúkum höndum !  En ég fór á dúndur grímuball um helgina og náði það að bæta geðheilsuna. Ég fór sem brúður Frankensteins Smile   Því miður neitar myndavélin að hlaða myndunum inn í tölvuna svo myndbirting verður að bíða betri tíma.  Best að fara að lúra og hætta að hugsa um viðvarandi húsnæðisleysi !!!  Kannski get ég fundið Frankenstein og flutt inn til hans ?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hmmmm... Frankenstein segirðu, er það nú ekki full mikil svartsýni elskan. Ég meina, hver vill búa með manni með notaðan heila og pinna í hálsinum þegar maður getur fengið karlmann með ónotaðan heila og pinna í tungunni á næstu krá?

puff fish (IP-tala skráð) 8.5.2007 kl. 22:02

2 Smámynd: Svava S. Steinars

Hehehe vel mælt kæri Puff fish   Best að fara á röltið

Svava S. Steinars, 9.5.2007 kl. 00:03

3 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Ó minn kæri Ágústín, allt er horfið burtu. Er ekki ráð að þér veðrið yður upp við einhvern svínahirði. Það væri alveg rakið í ljós starfs yðar.

Steingerður Steinarsdóttir, 9.5.2007 kl. 11:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband