Vonbrigði aldarinnar !!

Tilboðinu mínu í íbúðina var svarað með gagntilboði - sem ég svaraði með öðru gagntilboði.  Því var tekið - af 3 af 4 erfingjum dánarbúsins.  Ein systir hætti skyndilega við að vilja selja.  ARRRRGGGHH!!!  Eftir sit ég með sárt ennið og vona að systkinunum takist að tala hana til yfir helgina. Svo ég bið alla um að ákalla hverja þá guði sem þið kunnið að tilbiðja (bið að heilsa BAAL) og segið þeim að tryggja mér íbúðina.  Þetta er svo svekkjandi !!! Af hverju var manneskjan að samþykkja að setja íbúðina í sölu, svo þegar kemur að því að selja hana, þá nananananana, vill hún ekki vera með.  Mrrrrrd.  Svo ég er að sulla í mig einum Old Speckled Hen til að drekkja sorgum mínum.  Skál félagar !!!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Rafn Ingvason

KVUSSLAX eiginlega er þetta.

Sullaði í snatri í mig tvöföldum Highland Park þér til samlætis...

Haraldur Rafn Ingvason, 5.5.2007 kl. 00:07

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

ÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆ, hver skrambinn! Hvar er þessi íbúð?

Guðríður Haraldsdóttir, 5.5.2007 kl. 00:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband