Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008
26.11.2008 | 01:34
Eldur á mínu gamla heimili!
Eldur í Möðrufelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.11.2008 | 21:46
Hættustig hækkað í appelsínugult í hernaðaraðgerð Nýtt baðherbergi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.11.2008 | 21:10
Hilda bætir sig í kúluvarpi :)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.11.2008 | 01:04
Magga systir heiðruð af Stígamótum
Í dag stóðu Stígamót fyrir Evrópumálstofu um kynbundið ofbeldi. Í lok málstofunnar var fimm konum veitt jafnréttisviðurkenning fyrir störf í þágu samtakanna, fyrir kvenréttindabaráttu og baráttu gegn kynbundnu ofbeldi. Systir mín, Margrét Steinarsdóttir, var ein þeirra sem hlaut viðurkenningu. Hafi einhver verið vel að þeim verðlaunum komin er það einmitt hún. Hún hefur barist gegn ofbeldi gagnvart konum og börnum, gegn mansali og vændi, stutt jafnréttisbaráttu kynjanna og í alla staði unnið að því að bæta stöðu og ímynd kvenna í samfélaginu. Óeigingjarnari og sanngjarnari manneskju er vart hægt að finna. Það var því gleðistund að sjá hana taka við þessari viðurkenningu, finna stoltið vella í brjóstinu og finna fyrir þakklæti fyrir að vera svo heppin að vera skyld henni og því fengið að þekkja svona vel. Til hamingju elsku Magga mín ! Þó hinar konurnar fjórar sem fengu viðurkenningu hafi sannarlega átt það skilið fannst mér Magga auðvitað standa upp úr (sem hún reyndar gerir oftast ).
Tengill á frétt um jafnréttisviðurkenninguna á Mbl.is
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.11.2008 | 00:51
Jim Carrey tekur David Caruso í gegn hjá Letterman :D
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2008 | 01:00
Hernaðaraðgerðinni Nýtt baðherbergi hefur verið hrint í framkvæmd!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.11.2008 | 01:06
Að vera Bond, eða ekki Bond
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.11.2008 | 00:33
Ekkert fimmtudagsgrín :(
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2008 | 20:45
Flísarnar í höfn!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2008 | 01:30
Spil, gönguferð og fjölskyldusamkoma :)
Þá er enn ein helgin liðin og ég ligg sæl og ánægð með kanínunni uppi í rúmi. Svo skemmtilega vildi til að ég fékk tvö tækifæri til að svala spilafíkn minni. Á föstudagskvöldið fór ég til Júllu og afhenti henni afmælisgjöfina - sem var auðvitað viðbót við Carcassone. Þetta þýddi að sjálfsögðu að við "neyddumst" til að spila Cacassone 2x. Svo á laugardagskvöldið var fundur hjá spilaklúbbnum í tilefni þess að Mrs. Merrí, sparisjóðsfrú par excellance frá Ólafsfirði, var stödd í bænum og til í tuskið Fundað var heima hjá Helgu og voru einu vonbrigði kvöldsins sú að Bjarni Jóhann litli var sofnaður (búhú). Það kemur væntanlega fáum á óvart að við spiluðum Carcassone (neeeeei??). 3 grunnspil og uppáhaldsviðbæturnar. Eldhúsborðið hennar Helgu rétt dugði Síðan klykktum við út með því að kenna Maríu nýjasta æðið okkar, Bohnanza. Hún varð ástfangin af baununum eins og við og enginn vafi á því að hún verður til í að grípa í þetta spil aftur. Spilaklúbburinn plottar nú að hittast fyrir norðan eftir áramót, ég get ekki beðið Alltaf frábært að hitta þessar elskur, alveg endurnærandi. Annað tíðindavert frá laugardeginum er að ég er kannski búin að finna flísar fyrir baðherbergið ! Spennan eykst.. Eins og svo oft áður virðist vera nóg að fara með Sif vinkonu í búðir, þá gerist eitthvað ! Meira seinna um það mál eftir því sem það skýrist... Á sunnudaginn fór ég svo í göngutúr með Steinku systur og Freyju. Við fórum í Flekkuvík á Vatnsleysuströnd. Höfum verið þar áður og heilluðumst af stórum steinum í fjörunni sem sjórinn hafði sorfið á svo sérstakan hátt. Þá dreymdi Steinku um að fá slíkan stein með sér heim en við fundum engan léttari en ca. 1 tonn svo við urðum frá að hverfa tómhentar. Nú var annað uppi á teningnum, Steinku lukkaðist loks að finna lítinn stein sem við skiptumst á að bera upp úr fjörunni að bílnum. Við drápum okkur næstum því á þessu, steinninn var rúmlega 20 kg sem er kannski ekki svo mikið en sígur ótrúlega í. Við náðum einnig að njóta þess að sjá fallegt brimið og skoða flottu klettamyndanirnar í fjörunni áður en við lögðumst í grjótburð. Eftir þetta var allri fjölskyldunni stefnt í Hljóðalindina til Steinku. Áður en varði vorum við systur allar saman komnar ásamt Ragnari hennar Svanhildar, Óla, Steinari og litlu Örnu Rún, barnabarni Helenar. Mamma frétti af samkomunni og sagðist ætla að koma til að tryggja að við myndum örugglega ekki skemmta okkur of mikið Þetta var frábær eftirmiðdagur og gaman að fylgjast með yngstu meðlimum fjölskyldunnar. Sérstaklega var áhugavert að fylgjast með Steinari stýra Örnu litlu áfram með því að halda um hausinn á henni. Við urðum að grípa inn í ansi oft, einnig þegar hann reyndi að toga hana upp úr gólfinu á höfðinu... Ég fór heim sæl og glöð eftir þetta og slappaði af fyrir framan sjónvarpið. Engin kreppa hjá mér, bara eintóm hamingja
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)