Magga systir heiđruđ af Stígamótum

Verđlaunahafarnir, Magga önnur frá vinstriÍ dag stóđu Stígamót fyrir Evrópumálstofu um kynbundiđ ofbeldi.  Í lok málstofunnar var fimm konum veitt jafnréttisviđurkenning fyrir störf í ţágu samtakanna, fyrir kvenréttindabaráttu og baráttu gegn kynbundnu ofbeldi.  Systir mín, Margrét Steinarsdóttir, var ein ţeirra sem hlaut viđurkenningu.  Hafi einhver veriđ vel ađ ţeim verđlaunum komin er ţađ einmitt hún.  Hún hefur barist gegn ofbeldi gagnvart konum og börnum, gegn mansali og vćndi, stutt jafnréttisbaráttu kynjanna og í alla stađi unniđ ađ ţví ađ bćta stöđu og ímynd kvenna í samfélaginu.  Óeigingjarnari og sanngjarnari manneskju er vart hćgt ađ finna.  Ţađ var ţví gleđistund ađ sjá hana taka viđ ţessari viđurkenningu, finna stoltiđ vella í brjóstinu og finna fyrir ţakklćti fyrir ađ vera svo heppin ađ vera skyld henni og ţví fengiđ ađ ţekkja svona vel.  Til hamingju elsku Magga mín !  Ţó hinar konurnar fjórar sem fengu viđurkenningu hafi sannarlega átt ţađ skiliđ fannst mér Magga auđvitađ standa upp úr (sem hún reyndar gerir oftast Smile).

Tengill á frétt um jafnréttisviđurkenninguna á Mbl.is


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju med systur thina. :) Eg skil vel ad thu skulir vera stolt af henni enda thurfum vid slikar konur til ad stydja vid bakid a konum og bornum sem lenda i slikum adstaedum.

knus

Huld

Huld (IP-tala skráđ) 22.11.2008 kl. 20:54

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband