Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007
30.8.2007 | 23:39
Skírlífisnærföt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.8.2007 | 23:17
Flott hár en engar flísar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.8.2007 | 01:26
Að vera eða ekki vera...búin að fara með bílinn í skoðun
Bíllinn minn er með númeri sem endar á 7 en eins og alþjóð veit er það númer mánaðarins þegar bíllinn á að fara í skoðun. Glöggir lesendur munu fljótt átta sig á því að sjöundi mánuður ársins er liðinn og sá áttundi alveg að stinga okkur af. Ég er hinsvegar ekki búin að fara með bílinn í skoðun. Á hverju ári dreg ég lappirnar á eftir mér og fer ekki með bílinn fyrr en að einhver er búinn að hamra á því við mig að fara. Af hverju ? Jú, ég þjáist af "skoðunarkvíðaröskun". Ég stressast öll upp þegar ég mæti með bílinn í skoðun. Ég get aldrei verið á staðnum þegar skoðunin fer fram og þori varla að kíkja á bílinn þegar ég kem til baka af ótta við að sjá grænan endurskoðunarmiða á honum. Það hefur reyndar ekki gerst ennþá, ekki einu sinni þegar ég átti gamla Suzuki Swiftinn sem var svo sannarlega ekki besti bílinn í bænum. Ég er bara svona skrítin, af einhverri ástæðu finnst mér þetta óþægilegt ! En nú er að duga eða drepast ! Á morgun SKAL ég fara og fá skoðun á drossíuna. Best að fara þegar verulega bjart er svo þeir taki ekki eftir því að ljósið vantar í mælaborðið.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.8.2007 | 00:53
Flís plís !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.8.2007 | 00:47
Flísaleitarleiðangur og annað flakk
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.8.2007 | 00:01
Afslappað kvöld
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.8.2007 | 23:37
Steingrímur sætilíus í heimsókn um helgina
Í dag sótti ég stuðningsbarnið mitt hann Steingrím og verður hann hjá mér og Hildu um helgina. Við mæðgur vorum til allrar lukku búnar að ryðja honum braut hérna í stofunni svo hann hefði eitthvað svæði til að leika sér á. Á ganginum er enn nægt kassafargan, þó að til allrar lukku sé það farið að minnka. Steingrímur mun svo skreppa aðeins með mér í vinnuna í fyrramálið, en við heilbrigðisfulltrúarnir erum að fara að hlusta á skothvelli á morgun (ekki spyrja, þið viljið ekki vita meira). Áfram verður tekið úr kössum á morgun og hver veit, kannski getur litli karlinn leikið sér á ganginum á sunnudaginn Nánari fréttir og fleiri myndir af gaurnum eru á www.steingrimurpall.blogspot.com.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.8.2007 | 23:45
Loksins eitthvað að gerast !!
Mín ástkæra einkadóttir kom heim í dag og réðist á kassafjallið og húsgögnin af miklum ákafa. Og viti menn !! Það sést í íbúðina !!! Komin mynd á stofuna og kössum aðeins fækkað. Hægt að ganga um núna án þess að hafa áhyggjur af því að deyja vegna kassahruns. HÚRRA !!! Ungfrúin var verðlaunuð með súkkulaði fyrir dugnaðinn. Hún verður hér í viku svo ég geri ráð fyrir því að nú fari hlutirnir virkilega að gerast. Jibbí, við munum sigra kassana saman !! Þá er næst að gera upp baðherbergið... þekkir einhver góðan flísaleggjara og pípara ? Læt fljóta með mynd af okkur mæðgum sem Gunnella tók í Japan. Erum við ekki sætar ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.8.2007 | 21:36
Kassadama
Ein í kassa, passa
að missa ekki vitið
Fer að krassa, trassa
og get ekki upp litið
* * * * * * * * * * * * * *
Allt er á tjá og tundri
ætli nokkurn undri
þó ég fríki út
af sorg og sút
Þarf kannski ekki að taka það fram en ég er s.s. að brjálast á hve hægt gengur að ganga frá og gera íbúðina byggilega. Ef ég fer að tala tungum hér á blogginu vitið þið ástæðuna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.8.2007 | 16:58
Spiderman drengirnir - taka 2 !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)