17.12.2008 | 01:50
Hernaðaraðgerð baðherbergi - á síðustu metrunum!! Grænt ljós á notkun :D
JÁ JÁ JÁ!! Það er komið að þessu ! Iðnaðarmennirnir eru búnir með allt sitt, ég er komin með sturtu sem virkar og vask, málaða veggi, flísar og upphengt klósett. EINTÓM SÆLA!! Það eina sem út af stendur er að velja spegil, ljós og baðskáp. Held ég sé búin að finna fínt ljós í IKEA, hitt finn ég örugglega á næstu dögum. Ég get ekki lýst því hvað ég er fegin að þetta skuli vera að verða búið, og að ég geti loksins þrifið íbúðina. Er búin að ryksuga og þrífa einu sinni yfir allt, samt er gólfið enn loðið af ryki. Þetta tekst fyrir jól, ég lofa því ! Þegar það síðasta verður komið inn ætla ég að flytja inn á bað og vera þar næstu mánuði. Víí, ég elska baðherbergið mitt
Athugasemdir
Glæsilegt!
Ég get ekki beðið eftir að dumpa einhverju þarna.....
Kristín Anna (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 10:29
Hnuss ! Fólk þarf nú að greiða fyrir aðgang að svona flottu baðherbergi ! NO DUMPING !
Svava S. Steinars, 17.12.2008 kl. 15:28
Hvernig er það, á ekki eftir að þakka einhverjum eitthvað opinberlega fyrir sinn þátt í þessu baðherbergi. Maður þekki mann o.s.f.v
Pétur (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 15:29
Jú elsku snúllinn minn, þú mátt sko koma frítt inn á baðherbergið Þúsund þakkir fyrir hjálpina
Svava S. Steinars, 17.12.2008 kl. 15:51
Glaesilegt. :) Madur verdur nuna ad koma i heimsokn til thin BARA til ad fara a klosettid. ;)
knus
Huld
Huld (IP-tala skráð) 18.12.2008 kl. 00:10
Sérlegir innanhúshönnuðir fá líka fría klósettgistingu ;-)
Sif (IP-tala skráð) 18.12.2008 kl. 10:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.