Spiderman x 2 !

Í dag varð Óli litli frændi minn 3 ára og af því tilefni færði ég honum afmælispakka áðan.  Steinar litli bróðir hans varð 2 ára 1. ágúst og fékk líka síðbúinn pakka.  Í pökkunum leyndust Spiderman búningar, en Óla hafði dreymt lengi um að eignast einn slíkan Smile .  Þeir bræður æddu um allt í búningunum og voru ekkert kátir yfir því að þurfa að fara úr þeim þegar kom að því að fá sér afmæliskaffið.  Ætlaði að setja hér mynd með en því miður hefur Moggabloggið ekki leyft mér að pósta neinar myndir lengi ??  Gengur ekkert að hlaða inn myndum úr tölvunni, veit einhver hvernig á að sigrast á því vandamáli ?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Kannski þarftu að borga 100-200 kall til að fá meira myndapláss, tékkaðu á því hvort þú sért ekki búin með kvótann þinn.

Saknaðarkveðjur af Skaganum! 

Guðríður Haraldsdóttir, 18.8.2007 kl. 18:45

2 Smámynd: Rebbý

127 dagar til jóla, Svava hvað ertu að hafa þessa talningu uppi og láta stresstaugarnar taka kipp

viss um að bræðurnir hafa verið langflottastir í spidermangöllunum ... fáum að sjá það síðar

Rebbý, 19.8.2007 kl. 00:41

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þú ferð inn í stjórnborðið þitt, klikkar á myndapláss og þér verður hjálpað áfram!

Guðríður Haraldsdóttir, 19.8.2007 kl. 11:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband