Sayonara !

300px-Location_TokyoJapanJæja, við mæðgur leggjum af stað til Japan í fyrramálið !!  Það er loksins komið að þessu, eftir fleiri mánaða bið !  Verð að játa að ég er nett stressuð...  En það lagast þegar ég verð komin til Keflavíkur og inn í flugvélina.  Við mæðgur þurfum svo að koma okkur frá Gatwick að hótelinu okkar sem er rétt hjá Heathrow.  Svo getum við aðeins kíkt í bæinn, en við höfum nú ekki mikinn tíma til að skoða London er ég hrædd um.  Það verður að bíða betri tíma.  Við munum leggja af stað til Tokyo rétt fyrir kl. 14 á þriðjudaginn, hugsið til okkar á þessu 12 tíma ferðalagi (gisp).  Ég mun reyna að pósta fréttir af okkur hér, annars segi ég bara sayonara !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Góða ferð og góða skemmtun, elskan mín! Hrikalega fúlt af missa af ykkur í dag, þið á Skaganum og ég á SELFOSSI of oll pleisis!!! 

Guðríður Haraldsdóttir, 24.6.2007 kl. 23:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband