
Argh ! Nú er málið að flytja á brott ! Hilda er búin að fylla 7 kassa og ég tvo - svo þurftum við að hætta vegna kassaskorts. Engir kassar til í búðunum núna um helgina

Ég sé fram á að þurfa MARGA MARGA kassa, sérstaklega fyrir bækurnar. Ííík, verður gaman að bera bókakassana niður

Ég tek það fram að þetta verður í síðasta sinn sem ég bý á 4. hæð í húsi ÁN lyftu ! Ég ætla að reyna að henda grimmt um leið og ég pakka, það versta er að ég er risahamstur dulbúin sem kona og á afar erfitt með að henda nokkrum hlut. Það er með ólíkindum hvað ég hef sankað að mér miklu drasli gegnum árin ! Bæklingar, miðar í neðanjarðarlestir, hitt og þetta sem ég hef geymt til minningar um einhvern atburð. Mesti kvíðinn er þó vegna geymslunnar.... Ekki víst að ég komist lifandi frá þeirri lífsreynslu að fara í gegnum draslið þar !

Hilda er spennt og glöð - hún ætlar að ljúka því að pakka öllu úr herberginu sínu áður en hún fer heim til pabba síns á miðvikudaginn. Dugleg stelpa. Ef ég lifi þetta allt af verð ég flutt í næstu viku
Athugasemdir
Mikið varstu heppin að finna mynd sem líkist þér svo ósegjanlega mikið. Hjartkæri hamslausi hamstur.
Steingerður Steinarsdóttir, 26.2.2007 kl. 11:20
Viltu að ég komi til að henda? (djöfullegt bros).
margret steinarsdottir (IP-tala skráð) 26.2.2007 kl. 12:51
Já Margrét, komdu endilega. Ég læt þig bera bókakassana niður
Svava S. Steinars, 26.2.2007 kl. 16:09
Þú ættir bara að sjá bókakassana mína!
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir, 27.2.2007 kl. 23:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.