14.2.2007 | 14:23
Eru bandaríkjamenn endanlega gengnir af göflunum ?!!
Ég trúði ekki mínum eigin augum þegar ég á þessa frétt !!! Fréttastjórar að biðjast afsökunar af því að hafa tekið smá hlé á fréttaflutningi af láti Önnu Nicole til þess að birta ómerkilegar fréttir s.s. um ástandið í Darfur. 24 stærstu fréttastofurnar gagnrýndar fyrir ófullnægjandi fréttaflutning af láti hennar. Getur það virkilega verið að 300 miljón manna þjóð hafi ekki viljað gera neitt annað í þrjá sólarhringa en horfa á fréttir af dauða C-klassa leikkonu og sukkara ? Ef svo er þá er veruleikafirring komin á hættulega hátt stig þarna úti !
Fréttastofur gagnrýndar fyrir slælega umfjöllun um andlát Önnu Nicole | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Fylgstu nú með áður en þú springur úr reiði.
Einhver starfsmaður mbl.is las grín-grein, en fattaði ekki grínið. Þetta er komið frá þessum manni, og er augljóslega bara brandari.
http://www.jewishworldreview.com/0207/borowitz021407.php3
Andrés (IP-tala skráð) 14.2.2007 kl. 16:32
Þessi frétt er tekin af grínsíðunni Borowitz Report, og ekki skil ég í Mogganum að birta þetta svona. Þetta er á við að erlendur fjölmiðill myndi þýða og birta frétt af baggalutur.is
Eysteinn Kristjánsson (IP-tala skráð) 14.2.2007 kl. 17:34
Mikið er ég fegin að heyra að þetta var bara bull Þetta hefði annars verið alveg með ólíkindum
Svava S. Steinars, 14.2.2007 kl. 18:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.