Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008
30.5.2008 | 00:05
Gleðifrétt
Í fyrradag fæddist Helgu vinkonu og Halldóri hennar lítill drengur, 16,5 merkur og 53 cm. TIL HAMINGJU MEÐ DRENGINN ELSKURNAR MÍNAR
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2008 | 00:02
Jarðskjálfti gefur gott fótanudd
Ég sat við tölvuna í vinnunni þegar skjálftinn reið yfir í dag. Ég var á sokkaleistunum og allt í einu finn ég mikinn titring undir fótunum. Eftir að hafa notið nuddsins í nokkur augnablik spratt ég á fætur og tók í súluna sem er við hliðina á borðinu mínu. Sú skalf og nötraði á meðan 7 hæða húsið dansaði glaðlega. Að skjálfta loknum hoppuðu allir um í adrenalín sjokki, talandi hver ofan í annan og hringjandi út um allt. Ég spáði því strax að þetta væri skjálfti upp á 6,4 á Richter og ætti upptök sín í Ölfusi. Var ekki fjarri lagi
Karlarnir sem vinna að byggingu stóra turnsins við hliðina á voru svo stálheppnir að vera í kaffi þegar ósköpin dundu yfir, það hefði ekki verið gaman að vera á vinnupöllunum þá! Eftir að fyrsti æsingurinn fór að rjátlast af manni áttaði ég mig á því að Sonja og Ingibjörg vinkonur mínar búa á Selfossi. Ég bjallaði í hvelli og náði í Sonju sem til allrar lukku var heil á húfi ásamt fjölskyldunni. Einhverjar skemmdir urðu á innanstokksmunum en mikilvægara er að fólkið sé í heilu lagi. Ég náði ekki í Ingibjörgu en sá að hún hafði bloggað eftir atburðinn svo staðfest er að hún er líka hólpin. Þetta er furðuleg lífsreynsla að lenda í svona skjálfta, þessir kraftar eru eitthvað svo ótrúlega magnaðir. Að hús geti sveiflast og götur gengið í bylgjum! Hér í borginni sluppum við vel en hugurinn er hjá þeim sem verst fóru út úr þessu. Vonandi fær fólkið nægar bætur og aðstoð. Og vonandi kemur ekki annar stór skellur!

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.5.2008 | 23:39
Gæs næs !








Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.5.2008 | 00:50
Búdapest var æði :)




Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)