Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

Bwhaahahha

FarSide

Andvaka !

Get ekki sofnað !! Búin að lesa öll blogg, vefsíður og spila alla leikina - og er ekkert þreytt !  Stress vegna íbúðarkaupa (réttara sagt: stress vegna skorts á íbúðarkaupum) hrjáir mig.  Svo eru stórar breytingar í vinnunni.  Helgan mín að hætta, Lóan að fara í fæðingarorlof og Erpur hættir snögglega svo að á deildinni minni fækkar úr 7 niður í 5.  Úff !!  En ljósi punkturinn í öllu þessu er sú staðreynd að eftir aðeins 18 daga fer ég til JAPAN !!  Ég hlakka svooo til !!  Vonandi næ ég að festa kaup á íbúð áður, svo ég geti notið ferðarinnar til fulls.  Verð að játa að líkurnar fara minnkandi með hverjum deginum sem líður - en maður má láta sig dreyma.  Vantar bara nokkrar millur í viðbót, þá væri þetta ekkert vandamál.  Um leið og komið er í aðeins dýrari íbúðir en ég ræð við er úr nógu að velja.  Snuff.  Kannski hitti ég japanskan milla sem alltaf hefur dreymt um íslenska konu og fæ hann til að kaupa draumahúsið handa mér Smile   Vona að Gunnella vinkona fari að leita að honum og hafi hann tilbúinn þegar ég kem.  Jæja, Runólfur kisi kominn til að purra.  Best að reyna að lúra !! (ætla að telja kindur, sjá hvort það virkar !)

Snillingurinn minn !!

Hilda sæta :-)Í dag voru skólaslit hjá Hildunni minni og hún fékk einkunnirnar sínar fyrir 8. bekkinn afhentar.  Þær voru ekki að verra taginu frekar en venjulega (stolt mamma að springa úr monti!!!).  Meðaleinkunin hennar var 9,3 eftir veturinn !! Hún fékk nokkrar 10, 9,5, 9 og svo 8,5 í einu fagi.  Duglega stelpan mín !!! Hún fær einhvern glaðning frá mömmu fyrir góðan árangur InLove  Ekki spurning hvaðan hún hefur gáfurnar Tounge


Ekki alltaf svo alvarlegar !

Sé eftir því núna að hafa birt alvarlegustu myndina af okkur Magneu hér fyrir neðan. Verð að bæta úr því á morgun.  Við skemmtum okkur virkilega þetta kvöld, vorum ralluf og í góðu stuði.  En hér er ein mynd til að sýna og sanna að við getum verið kátar:

Ég og Magnea í góðum fílíng !


Skvísur á Kúbukvöldi

IMG_3725


Gáfurnar staðfestar !

Var að taka gáfnapróf sem ég fann á blogsíðu Gurríar og skoraði 149.  Skv. prófinu er ég genius.  Þetta hefði ég aldrei getað með ljósa hárið !  Prófið sjálf á www.IQTest.com

Skemmtileg helgi dökkhærðu konunnar

Tja, ég er kannski ekki neitt rosalega dökkhærð - en mun dökkhærðari en áður amk.  Og miklu gáfaðari, já já. Var meira að segja að lesa bók áðan og sneri henni rétt !  Á föstudagskvöldið var Kúbukvöld í vinnunni.  Tveir vinnufélagar breyttu kaffistofunni í bar og blönduðu Pina Colada, Mohitos og Cuba Libre fyrir hvern sem hafa vildi.  Annar vinnufélagi sá um kúbverska tónlist.  Eftir að við vorum búin að innbyrða slatta af kokteilum kom danskennari og kenndi okkur grunnsporin í salsa.  Það gekk svona la la.... en var mjööög gaman LoL  Held að ég þurfi aðeins meiri æfingu áður en ég verð professional Cool  Á laugardaginn skelltum við mæðgur ásamt mömmu, Svanhildi og fjölskyldu, á þjóðahátíð Alþjóðahússins sem haldin var í Hafnafirði.  Þar voru básar tileinkaðir hinum ýmsu þjóðlöndum og þar gat maður fengið að smakka mat og jafnvel kaupa ýmislegt smálegt.  Mamma náði sér í snafs í einum básnum - að sjálfsögðu náði sú gamla að þefa uppi áfengi Tounge  Ég fékk mér smakk af indónesískum, japönskum og tælenskum mat og nældi mér einnig í mini ameríska ostaköku.  Mmmmm, yummy.  Á sviði í miðju hússins voru sýnd skemmtiatriði, m.a. afríkanskur trommuleikur.  Aumingja litli Óli frændi var bara hræddur við allan hávaðann en litla bróður hans fannst þetta ekkert leiðinlegt.  Um kvöldið fórum við á Pirates of the Carribean 3.  Hún var alltof löng að mínu mati, hefði verið hægt að klippa hana niður í sómasamlega lengd án þess að það hefði komið niður á söguþræðinum.  Bardagaatriðin voru ansi löng.  Það var svo sem gaman að henni en ég held að nú ætti Disney að fara að gera myndir um eitthvað annað...  Sunnudeginum eyddum við mæðgur í Kringlunni going shopaholic.  Hilda græddi sumarkjól og sandala, ég skó og bók um Búdapest.  Svo fórum við heim og skúruðum húsið hátt og lágt.  Púff !!  Á maður ekki að slaka á um helgar ?? Pirringur dagsins: Skjár einn sýndi eldgamlan Boston Legal þátt !!! FNYS !!! 


Auknar gáfur !!

Ég er orðin dökkhærð !  Og þar með orðin kjarneðlisfræðingur.  Bless bless ljóskubrandarar !


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband