Andvaka !

Get ekki sofnað !! Búin að lesa öll blogg, vefsíður og spila alla leikina - og er ekkert þreytt !  Stress vegna íbúðarkaupa (réttara sagt: stress vegna skorts á íbúðarkaupum) hrjáir mig.  Svo eru stórar breytingar í vinnunni.  Helgan mín að hætta, Lóan að fara í fæðingarorlof og Erpur hættir snögglega svo að á deildinni minni fækkar úr 7 niður í 5.  Úff !!  En ljósi punkturinn í öllu þessu er sú staðreynd að eftir aðeins 18 daga fer ég til JAPAN !!  Ég hlakka svooo til !!  Vonandi næ ég að festa kaup á íbúð áður, svo ég geti notið ferðarinnar til fulls.  Verð að játa að líkurnar fara minnkandi með hverjum deginum sem líður - en maður má láta sig dreyma.  Vantar bara nokkrar millur í viðbót, þá væri þetta ekkert vandamál.  Um leið og komið er í aðeins dýrari íbúðir en ég ræð við er úr nógu að velja.  Snuff.  Kannski hitti ég japanskan milla sem alltaf hefur dreymt um íslenska konu og fæ hann til að kaupa draumahúsið handa mér Smile   Vona að Gunnella vinkona fari að leita að honum og hafi hann tilbúinn þegar ég kem.  Jæja, Runólfur kisi kominn til að purra.  Best að reyna að lúra !! (ætla að telja kindur, sjá hvort það virkar !)

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Megi íbúðaengillinn færa þér hús á silfurfati Svabbi minn.

Steingerður Steinarsdóttir, 8.6.2007 kl. 11:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband