21.9.2008 | 23:55
Hvernig er hægt að koma illa fram við þennan prins?
Hér eru myndir af litla prinsinum honum Steingrími. Gætuð þið hugsað ykkur að fara með þennan snáða eins og dauðan hlut og henda honum einhversstaðar inn á gólf? Er með síðu þar sem hægt er að sjá hvað við gerum þegar ég er með hann, hana er að finna hér. Er búin að skrifa bæjarstjóranum í Mosó og senda erindi til umboðsmanns barna. Vonandi fær hann góða þjónustu og það strax !! Sorglegt hve margir aðrir hafa slæmar sögur að segja !
Athugasemdir
Flott hjá þér Svava! Steingrímur og allir hinir fötluðu einstaklingarnir eiga skilið að fá mannsæmandi þjónustu, þetta er því miður allt of algengt og ótrúlegt stundum að sjá meðferðina og virðingaleysið sem þau geta lent í! Bíð spennt eftir viðbrögðum við bréfaskrifunum!
Steingrímur er alltaf flottur!
Kristín Anna (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 06:44
En hvad hann er duglegur ad ganga guttinn. :) Ordinn svo stor og myndarlegur lika. Skiladu kvedju til moso fjolskyldunnar fra mer.
kv
Huld
Huld (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 12:37
Júlíana var einmitt búin að segja mér af þessu og maður á bara ekki til orð yfir þessu þjónustuleysi, því varla er hægt að kalla þetta þjónustu.
Vonandi bætir þetta fyrirtæki ráð sitt ekki seinna en núna!!
Védís (mágkona Matta) (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 17:05
Sorglegt ad slikt skuli vidgangast ,serstaklega a Islandi (socialist nation)thar adstod vid tha sem minna mega sin a ad vera til fyrirmyndar.
kv
Huld
Huld (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 01:29
Sætar myndir af snúlla :) Baráttukveðjur úr suðrinu! Vonandi fá einhver höfuð að fjúka og endurbætur á skipulagi og endurmenntun og og og... hvar á að byrja eiginlega?!!
Björg, Ísak og Aron í CA (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 03:42
Gangi ykkur vel!
KLóa
Kristín Lóa Ólafsdóttir (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 08:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.