23.3.2008 | 22:27
Páskadagsferđ ađ Strandakirkju og ofát par excellance
Jćja, vart ţarf ađ taka fram ađ mín er búin ađ fá sér af páskaegginu sínu í dag. Reyndar hreinlega búin međ ţađ! Mmm, ţađ er alltaf sérstök stemning sem fylgir ţví ađ borđa páskaegg og sjá hvađa málshátt mađur fćr. Ţetta áriđ fékk ég málsháttinn "Fyrri er nćring en fullur magi". Heh, góđ skilabođ í byrjun páskadags! Eftir hádegiđ brugđum viđ Hilda okkur í bíltúr međ Steinku systur ađ Strandakirkju. Ég hafđi aldrei skođađ ţá frćgu kirkju fyrr. Fjaran fyrir neđan kirkjuna er alveg einstök, stuđlabergsklettar og fjörupollar. Brimiđ ţar getur veriđ alveg stórkostlegt. Viđ sáum glitta í sel á einu skerinu en ţokumugga var međ ströndinni svo skyggniđ var ekki gott. Kirkjan var afar falleg lítil sveitakirkja, spurning hvort mađur ćtti ađ heita á hana og gá hvort ţađ myndi rćtast ? Ţar sem ţađ var frekar hráslagalegt úti vorum viđ ekki lengi á röltinu en skelltum okkur inn í T-bć, litla veitingasölu sem er rétt hjá kirkjunni. Ţar fengum viđ gott kaffi og fínar tertur. Eigandinn spjallađi viđ okkur og viđ áttum reglulega huggulega stund. Ég mćli međ ađ kíkja ţarna viđ ef ţiđ eigiđ leiđ ţarna um. Okkur Hildu var síđan bođiđ í mat hjá mömmu og fengum ţar dásamlegan kjúklingarétt. Ég ligg ţví núna hálfmeđvitundarlaus af ofáti og slappa af. Geri ekki ráđ fyrir ađ ţurfa ađ borđa nćstu árin!
Athugasemdir
jćja orđin svöng elskan ?
ţekki ţig of vel til ađ halda ađ ţú sért búin međ kvóta helgarinnar, hvađ ţá vikunnar
Rebbý, 24.3.2008 kl. 10:41
Ţessi málsháttur hefđi mátt rata í mitt egg. Ég hefđi átt hann skiliđ.
Steingerđur Steinarsdóttir, 26.3.2008 kl. 16:00
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.