15.11.2007 | 23:31
Fiskflak er ekki bara fiskflak
Á þriðjudaginn fór ég á námskeið í að meta ferskleika þorsks. Hehe, já, veit það hljómar undarlega. Matís bauð mér á námskeiðið því ég hef tekið þátt í könnunum hjá þeim. Og þó sumum kunni að finnast það skrítið var námskeiðið mjög skemmtilegt og áhugavert. Ég hefði aldrei trúað því hvað gæði fisksins breytast mikið á 11 dögum, þó hann sé geymdur á ís. Við prófuðum að gefa soðnum flökum einkunn fyrst og úff, það var MIKILL bragðmunur á ferskum fiski versus ellefu daga. Oj hvað sá gamli bragðaðist illa. Svo mátum við fersk flök og þá þurftum við að gera sjónmat, pota í þau og hnusa af þeim. Við vorum orðin ansi sleip í þessu og fengum því verðlaun í lok dagsins: ELDSMIÐJUPIZZU !!! Yes! Ekki sjávarréttapizzu, tek ég fram ! Framhald næsta þriðjudag, verður bara gaman. Næst þegar ég fer í fiskbúð mun ég horfa á flökin með muuun gagnrýnni augum. Lykilatriðið er að ef lyktin í búðinni er vond - látið ykkur hverfa !
Athugasemdir
Eldsmiðjupítsu hún fær
eftir að hafa potað í fiskflak í gær.
Hún át hana hún Svava
en ráðleggur ekki að lafa
í fiskbúð ef lyktin er þínu nefi ei kær.
Steingerður Steinarsdóttir, 16.11.2007 kl. 11:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.