28.2.2007 | 00:20
Ljúfur kvöldmatur í Kassalandi
Dóttir mín var svo ferlega indæl að elda kvöldmatinn í kvöld. Ekki nóg með það, hún dúkaði borð, kveikti á kertum og bjó til ferlega huggulega stemningu mitt í kassahrúgunni. Að sjálfsögðu var ís í eftirrétt og hún dreifði súkkulaðikurli yfir hann, ekkert smá flott ! Það er eftir allt saman ekki svo slæmt að eiga 14 ára dóttur
Annars gengur ágætlega að setja í kassa - en þetta er samt ekki nærri því búið ! Íííík ! Finn að geðheilsan er á hraðri leið niður á við.....
Athugasemdir
Þið mæðgur eruð ógeðslega sætar þarna. Ég vildi að ég hefði verið boðin í kvöldverð.
Steingerður Steinarsdóttir, 28.2.2007 kl. 10:21
Þetta var afskaplega sætt af henni Hildu! Uppeldið hefur greinilega tekist vel.
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir, 28.2.2007 kl. 12:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.