19.2.2007 | 19:58
Eru mæður ekki fallegar ?
Rak augun í þessa frétt um spænska stúlku sem var meinað að taka þátt í fegurðarsamkeppni af því hún átti 3 ára son. Þetta er lýsandi fyrir þann hugsunarhátt sem ríkir í kringum fegurðarsamkeppnir víðsvegar um heim. Stúlkurnar sem taka þátt þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði sem geta verið margvísleg: ekki vera gift, ekki eiga börn, ekki vera of gömul, ekki hafa gert neitt sem keppnishaldarar telja siðferðislega ófullnægjandi og ekki vera nema rétt yfir hungurmörkunum í þyngd. Verið er að eltast við einhverja afdankaða jómfrúarímynd en samt er stúlkunum stillt upp klæðalitlum eins og kjötstykkjum á markaði. Sú framsetning er í hróplegu ósamræmi við þær fullkomnunarkröfur sem stúlkunum eru settar. Vart þarf að taka fram að þó að vissulega séu sett skilyrði í fegurðasamkeppni karla eru þau öðruvísi og ekki eins ströng (gæti verið að Herra Ísland fyrrverandi sé mér ósammála). Amk telja menn á Spáni að karlmenn geti verið fallegir þó þeir eigi börn, en sama á ekki við um konur. Mæður virðast ekki teljast fallegar eða sexý. Stúlkan í fréttinni var undrandi á fornaldarhugsunarhætti keppnishaldara. Ég er hissa á því að hún skyldi ekki átta sig á því hversu steinaldarleg og hallærisleg sú hugmynd að halda fegurðarsamkeppni er.
Spænsk fegurðardrottning dæmd úr leik fyrir að vera móðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Var Ben Johnson ekki fljótur að hlaupa? Mæður eru fallegri og hún svindlaði.
Þorvaldur Blöndal, 19.2.2007 kl. 22:49
Þessar fegurðarsamkeppnir. Það er alveg með ólíkindum hversu vinsælt þetta er. Nú eru það ekki lengur eingöngu konur sem keppa í fegurð, karlar, börn, svín, kindur og kýr hafa bæst í þann hóp og í öllum tilfellum er þetta jafnvitlaust.
Steingerður Steinarsdóttir, 20.2.2007 kl. 09:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.