Pirringur dagsins !

Ef það er eitthvað sem ég ekki þoli þá eru það símhringingar frá ótal líknarfélögum sem reyna að pranga inn á mig geisladiskum, bókum eða öðru drasli.  Maður þarf að hlusta á langa og hjartnæma ræðu um málstaðinn og á svo að borga tvöfalt verð fyrir eitthvað sem manni langar ekkert í.  Sama gildir um gíróseðla sem dreift er í öll hús sem með fylgir eitthvað dót s.s. jólakort eða eitthvað í þeim stíl.  Þetta pirrar mig mjög mikið, þarna er reynt að höfða til samvisku fólks - ekki ferðu að nota jólakortin án þess að borga ?  Og ekki hendir þú bara fínum jólakortum ónotuðum ?  Nýjasti anginn af þessu er þegar svokallaðir "valkræfir" gíróseðlar dúkka upp í heimabankanum.  Ótrúleg frekja !  Allt í einu er þarna einhver reikningur sem maður kannast ekkert við og þegar verið er að haka við langan lista af reikningum sem á að borga er auðvelt að ruglast og kippa honum með.  Það gladdi mig því að sjá þessa frétt á mbl.is um að búið sé að kvarta til talsmanns neytenda og hann sé farinn að kanna málið. Mér finnst þetta átroðningur, ef ég vil styrkja líknarfélög vil ég gera það með því að greiða inn á reikning viðkomandi félags.  Þá er enginn símasölukostnaður, prentkostnaður á auglýsingamiðum, gíroseðlum og jólakortum.  Og þá er enginn að troða sér inn í heimabankann minn í þeirri von að ég óvart borgi reikninginn þeirra.  Einu kröfurnar sem eiga að vera í mínum heimabanka eru þær sem ég hef stofnað til sjálf.  Og hananú !


mbl.is Greiðsluseðlar sendir í heimabankann án þess að vara sé pöntuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann H.

Hvað er heimabanki??

Jóhann H., 4.2.2007 kl. 03:49

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Sammála.  Ég hef einmitt tekið eftir þessu endalausa áreiti frá hinum ýmsu líknarfélögum hérna heima.  Ég flutti heim frá Danmörku s.l. ár eftir 9 ár og var bara búin að gleyma hvernig þetta er hérna.  Ég fékk einmitt send jólakort með gíróseðli og ég hafði enga samvisku í að nota þau þar sem ég ætlaði ekki að borga fyrir þau, svo þau enduðu í ruslinu eftir jól.  

Hins vegar styrki ég góðgerðarstarfsemi, er styrktarforeldri fyrir barn í afríku og fleira, en ég vil sjálf fá að velja hvað ég styrki...og hana nú!!

SigrúnSveitó, 4.2.2007 kl. 10:15

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ég haka við þetta allt sem rusl og fleygi ... en lenti samt í því að vera tvírukkuð um áskrift að DV. Vinnan mín á að borga áskriftina en þeir rukkuðu mig líka, ormarnir! 

Fattaði þetta einmitt þegar ég kíkti í heimabankann minn! Best að gera það núna á eftir til öryggis. Segi yfirleitt nei þegar grátið er í síma við mig en samt hef ég séð rukkun þótt ekki hafi ég fengið væmnu og viðbjóðslegu plötuna sem átti að vera agnið ... arrrgggggg! 

Guðríður Haraldsdóttir, 4.2.2007 kl. 14:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband