4.4.2010 | 17:02
Gönguferð með Steinku og Gumma
Þann 13. mars skrapp ég í smá bíltúr með fuglaskoðun og göngutúraívafi
Byrjuðum í fuglaskoðun við Elliðavatn en þar tókst Freyju að draga Steinku systur niður af göngustígnum og henda henni um koll á æðisgenginni leið hennar niður að vatninu
Síðan keyrðum við austur fyrir fjall og stoppuðum fyrst við ósa Ölfusár og Freyja fékk að leika lausum hala í fjörunni. Því næst var förinni heitið á Stokkseyri þar sem við skoðuðum listamiðstöð og skruppum svo í göngutúr í fjörunni. Rákumst á hundaræktanda með nokkra yndislega íslenska hvolpa sem voru í girðingu í garði. Steinka fékk að halda á einu krílinu og við ætluðum aldrei að ná henni í burtu. Því næst var brunað á Selfoss í leit að kaffihúsi en ekkert fannst opið! Við enduðum því á kaffi og með því í bakaríinu í Hveragerði. Afar skemmtilegur dagur, var fegin að komast heim með heilar hendur því Freyja eyddi bakaleiðinni í að sleikja hendurnar á mér upp til agna !
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.