
Jahérna hér. Allt þetta stúss á Facebook hefur rænt mig

öllum tíma til að sinna blogginu mínu. Best að koma aðeins með smá fréttir hér. Árið 2009 er liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur aftur. Ég ferðaðist bara innanlands á síðasta ári og var það alveg frábært. Fullt að gera í vinnunni eins og venjulega og

Hilda Margrét lauk grunnskóla með stæl og byrjaði í MR síðasta haust. Gæludýrunum fækkaði niður í 3 á árinu vegna fráfalls stökkmúsa og gullfisks. Gott ár þrátt fyrir

kreppu og Icesave og hvað veit ég. Að venju var síðasta degi ársins fagnað með veislu hjá Steinku systur. Var þar mikið grín og gaman og sérstaklega góður matur. Læt fylgja nokkrar myndir frá kvöldinu hér með. Gleðilegt ár 2010 !!