14.11.2008 | 00:33
Ekkert fimmtudagsgrín :(
Fimmtudagar eru uppáhalds sjónvarpskvöldin okkar Hildu. Family Guy, 30 Rock og House sjá okkur fyrir 2 tíma stanslausri skemmtun. Hilda var í klippingu og við flýttum okkur heim til að missa ekki af fjörinu - og fengum bara stillimynd á skjáinn. ARRRGHH! Ég skrifaði mig strax á listann á skjárinn.is þegar ég frétti af honum, þá voru aðeins 3000 skráðir. Nú eru tæplega 50.000 búnir að skrá sig. Mér finnst að RUV eigi að sjá sóma sinn í að svara kalli þjóðarinnar og hætta að undirbjóða einkastöðvarnar og draga sig út af auglýsingamarkaðinum. Á þessum tímum á ríkið að styðja við atvinnulífið ! Ekki það, við Hilda lifum þetta nú af, fórum bara á netið og horfðum á South Park. Við styðjum samt Skjá einn :)
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.