5.8.2008 | 00:52
Gleði og gaman í góðri grillveislu
Magga systir bauð allri fjölskyldunni í grillveislu síðasta föstudag. Nær allir mættu, aðeins Atli og Helen Laufey voru fjarri góðu gamni. Boðið var upp á grilluð lambalæri með dásamlegu meðlæti sem mismunandi fjölskyldumeðlimir lögðu til og að sjálfsögðu var ís í eftirmat
Reyndar rákumst við á fleiri ættingja þar sem Bjössi frændi býr í kjallaranum og var einmitt að leggja af stað í útilegu þegar gestirnir komu. Linda systir hans birtist svo óvænt og þótti ansi gaman að geta heilsað upp á nær alla fjölskylduna á einu bretti. Stjarna dagsins var litli Steinar sem varð þriggja ára þennan dag og gekk stoltur um með ruslabílinn sem hann fékk í afmælisgjöf. Þetta var frábær veisla og ég get ekki beðið eftir næstu fjölskylduveislu. Kannski að það verði afmælisveisla þeirra bræðra?
Athugasemdir
Ó, þessi indæli guli hundur. Hann heillar mig ævinlega upp úr skónum og það gera Steinarnir tveir líka. Læt vera með hrúgöldin í rúminu.
Steingerður Steinarsdóttir, 6.8.2008 kl. 09:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.