8.10.2007 | 01:27
Fetađ í fótspor móđur sinnar
Oft talar fólk um ţađ međ stolti ađ börnin feti í ţeirra fótspor í lífinu. Ţađ geta líka oft veriđ gćfuspor fyrir börnin - en ekki alltaf, eins og sannađist á föstudaginn. Um eftirmiđdaginn fékk ég hringingu frá dóttur minni sem sagđist hafa tognađ á litlu tánni viđ ađ húrra niđur stigann heima hjá pabba sínum. Hún var stödd á frjálsíţróttaćfingu en treysti sér ekki til ađ halda áfram. Mamman sótti afkvćmiđ en var frekar efins í ţví ađ meiđslin vćru alvarleg. Skođun á tánni á veitingastađ skömmu síđar (afar lystaukandi) varđ ekki til ađ breyta ţví áliti. Táin var jú svolítiđ bústin en leit annars ekki illa út. Áfram kvartađi afkvćmiđ samt og hoppađi um allt á einum fćti. Viđ brugđum okkur svo í heimsókn eftir kvöldmat og ágerđust ţá verkirnir. Ég ákvađ ţví ađ kíkja aftur á tánna og ţá voru hlutirnir heldur betur breyttir. Táin var orđin margföld og mikil bólga fyrir neđan hana. Hún var einnig fallega fjólublá međ hvítum blettum. Full samviskubits yfir fyrri efasemdum um alvarleika málsins brunađi ég međ hana á slysadeildina. Viđ komumst í forgang ţar sem hún flokkast enn sem barn. Okkur var ţví vísađ inn á barnabiđstofuna ţó daman sýndi nú lítinn áhuga á dótinu sem ţar bauđst.
Táin góđa var röntgenmynduđ og viti menn, hún var brotin !! Ţađ verđur ţví lítiđ um ćfingar hjá íţróttakonunni minni nćstu 3 vikur. Mér finnst ágćtt ađ hún taki sér mig til fyrirmyndar ađ mörgu leyti, en alger óţarfi ađ fara ađ apa eftir beinbrotunum mínum !!! Cindy vinkona var í heimsókn og fór međ okkur upp á deild. Hún benti mér á hve grunsamlega ţetta leit út - barniđ "datt niđur stiga". Alger klisjuafsökun fyrir heimilisofbeldi !! Ef barnaverndarnefnd bankar upp á bendi ég á ađ "slysiđ" gerđist hjá pabba hennar


Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.