
Þ.e.a.s. borgin er ekki að koma nær, en ferðin til Brussel nálgast

12 heilbrigðisfulltrúar (að vísu einn fyrrverandi) fara saman til að kynna sér stjórnsýslu á sveitastjórnarstiginu hjá Evrópusambandinu. Hljómar þetta ekki spennandi í ykkar huga ? En ef ég bæti við belgísku konfekti, nóg af bjór og móttöku að loknum fyrirlestrum, verður þetta ekki aðeins betra ?

Við fljúgum út til Amsterdam næsta miðvikudag (hluti hópsins) og tökum lest þaðan til Brussel. Við eigum víst að halda fast í töskurnar í þeirri ferð, lestirnar eru vinsælir veiðistaðir þjófa ! Fimmtudag og föstudag eru fyrirlestrar, laugardagurinn frjáls. Við fljúgum svo frá Brussel eldsnemma á sunnudagsmorgun yfir til London. Hálfur dagur til að versla í London, svo flogið heim kl. 21 um kvöldið. Við munum gista á hóteli í miðborginni og verðum því stutt frá því helsta sem er þar að sjá og skoða. Get ekki beðið, þetta verður stuuuð ! Svo 12. október er næsta ferð, skemmtiferð til Búdapest með Júllu vinkonu ! Meira um það síðar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.