Stuð í stúdentaveislu

Eva stúdentÁ laugardagskvöldið var haldin útskriftarveisla fyrir Evu Halldóru systurdóttur mína, en hún var að ljúka stúdentsprófinu frá Versló núna í vor.  Að sjálfsögðu stóð hún sig stórkostlega vel.Smile   Í veislunni var voða stuð og valinkunnur skríllinn.  Ég sat hjá systrabörnum mínum og við rifjuðum upp ýmsa atburði úr æsku þeirra, s.s. þegar ég fékk tequila í afmælisveislu Gumma mágs og endaði svo á að leika mér í bófaleik allt kvöldið við frændur mína Atla og Andra, sem þá voru smápollar.  Þeir áttu ekki til orð yfir því hvað Svava frænka var skemmtileg allt í einu...  Svo var það sagan af skáphurðinni í eldhúsinu hjá mömmu.  Fyrir ofan kústaskápinn var grunnur efri skápur með fremur stórri skáphurð.  Hjarirnar voru eitthvað farnar að bila og mamma margoft búin að biðja pabba um að laga þetta enda óttaðist hún að hurðin gæti dottið niður á eitthvað barnið á heimilinu.  Eitt kvöldið brá hún sér frá og ég, Svanhildur og Steinar Örn vorum heima hjá pabba.  Við Steini vorum svona 3 og 7 ára held ég, Svanhildur um 11 ára.  Af einhverri ástæðu vorum við öll stödd inni í eldhúsi, fyrir framan kústaskápinn, þegar skáphurðin góða ákvað að láta sig húrra.  Aumingja Svanhildur var stærst svo hún fékk versta höggið, svo hélt hurðin áfram í hausinn á mér og Steina.  Ég man enn eftir að sjá hurðina koma !  Þegar mamma kom heim sá hún að skáphurðin var dottin niður og varð þá að orði: Guði sé lof að börnin voru ekki undir henni.  Börnin ?  Þau voru öll undir henni ! var henni svarað LoL   Ótrúleg tilviljun !  Þetta var s.s. frábær veisla og veitingarnar dásamlegar.  Eva Halldóru óska ég alls hins besta í framtíðinni - henni eru allir vegir færir þessari elsku.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Eitthvað hefur þú miskilið mig Svava mín. Eva var ekki meðal átta efstu. Það voru hins vegar átta stúlkur meðal tíu efstu nemenda en ég sagði að ég hefði glaðst yfir að Eva væri í hópi allra þessara glæsilegu kvenna sem þarna voru stúdentsefni. Hún var með fínar einkunnir en dúxaði ekki.

Steingerður Steinarsdóttir, 29.5.2007 kl. 10:28

2 Smámynd: Svava S. Steinars

Hér með leiðrétt

Svava S. Steinars, 29.5.2007 kl. 13:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband