Varúđ ! Kanína framundan !

mai06 028Í gćrmorgun rumskađi ég um sexleytiđ og kippti ţá kanínunni minni upp í rúm til ađ kúra hjá mér.  Ég steinsofnađi aftur og vaknađi ekki fyrr en ađ klukkan hringdi klukkutíma síđar. Ég teygđi ađeins úr mér og bylti mér til en sćngin var of freistandi til ađ spretta strax fram úr.  Svo međ ofurmannlegu átaki svipti ég mér upp, reif af mér sćngina og sveiflađi löppunum fram úr.  Ţá stökk skelfingu lostin kanína út úr sćnginni í loftköstum og ţvagbunan stóđ aftan úr henni yfir mig og rúmiđ.  Ég var s.s. búin ađ steingleyma ţví ađ kanínan gćti veriđ á sveimi í rúminu !  Oftast stekkur hann aftur niđur á gólf og fer í bćliđ sitt.  Annars liggur hann til fóta og kemur röltandi ţegar ég fer ađ hreyfa mig.  Ţađ var hann vćntanlega ađ gera ţarna greyiđ, hefur veriđ ađ koma til ađ heilsa mér og ég ţeytti honum á loft međ sćnginni.  Ţetta tafđi morgunverkin ađeins ađ ţurfa ađ redda hreinsun á kanínupissi.  En ég get sjálfri mér um kennt.  Kanínan fyrirgaf mér um leiđ og káliđ og gulrćturnar voru komnar í matardallinn.  Passa ađ gera rćfilinn ekki ađ flugkanínu aftur.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingerđur Steinarsdóttir

Ég hef nokkrum sinnum séđ ketti fljúga af sömu ástćđum og kanína tókst á loft. Ţegar Matti var kettlingur svaf hann einu sinni ofan á Gummi sem bylti sér eitthvađ í svefninum og kippti sćnginni ofar. Ţá flaug lítil svarthvítur hnođri hátt upp í loft og skall svo niđur á sćnginni aftur. Hann tók ţetta hins vegar ekkert nćrri sér. Kúrđi sig bara niđur og hélt áfram ađ sofa.

Steingerđur Steinarsdóttir, 14.2.2007 kl. 09:08

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband