Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007

Hugljúf dvöl í Himnaríki :-)

feb07 038Ég brá mér af bæ í dag með barn og stuðningsbarn og skellti mér með Steinku systur í heimsókn til Gurríar ofurbloggara uppi á Skaga.  Helen systir fékk að fljóta með uppeftir en varð fljótlega snarrugluð.  Því redduðum við snarlega með súkkulaði og kók.  Við komum færandi hendi í Himnaríki með kökur og Gurrí var ekki lengi að hita tevatn og redda kaffi úr fínu kaffivélinni.  Guðrún vinkona hennar kom skömmu síðar í heimsókn og við spjölluðum saman og nutum útsýnisins yfir sjóinn.  Við gátum einnig skoðað nýju svalirnar hennar Gurríar, sem enn er ekki hægt að komast út á nema í gegnum lítinn glugga.  Sem er fínt, ef maður er á stærð við kött.  Þegar Gurrí verður komin með dyr út á þær verða þetta feb07 059fullkomnar partísvalir.  Hún ætlar einnig að rækta þar kartöflur og koma upp þyrlupalli.  Eftir ljúfa dvöl í Himnaríki skelltum við okkur á nýopnað kaffihús þar sem við nutum góðra veitinga.  Að því loknu brunuðum við systur í bæinn með börnin, sælar og ánægðar.  Það var hugljúft að dvelja í Himnaríki.

Roðn

Hversu vandræðalegt er það að sofa yfir sig og koma klukkutíma of seint í vinnuna af því þú lagðist ofan á símann sem þú notar sem vekjaraklukku ?  Jamm, rétt, það er ferlega vandræðalegt.  Ekki bætir úr skák að starfsmannafundur skuli einmitt vera í gangi þegar þú ert að mæta á staðinn svo að allir vinnufélagar þínir sjá þig koma skömmustulega og stimpla þig inn. Argh. Væri afsakanlegt ef ég væri táningur - ekki á mínum virðulega aldri ! Blush

Frægur, frægari, frægastur

01_intro_apLátin er í Bandaríkjum Norður Ameríku kona að nafni Anna Nicole Smith, 39 ára gömul.  Raunverulegt nafn hennar var Vicky Hogan.  Kona þessi hafði sér helst til frægðar unnið að hafa gifst 89 ára gömlum olíumiljarðamæring þegar hún var aðeins 27 ára.  Svo barðist hún árum saman fyrir því að fá eftir hann arf þegar hann hrökk upp af ári eftir brúðkaupið.  Þeirri baráttu var enn ekki lokið.  Hún sat fyrir í Playboy.  Einnig varð hún fræg fyrir að verða feit og svo aftur mjó.  Hún var sérstaklega fræg fyrir undarlega og oft vafasama hegðun sína á opinberum vettvangi sem tengja mátti við eiturlyfjanotkun.  Heimsbyggðin fylltist samúð með henni í fyrra þegar hún misti einkason sinn sviplega og fréttavefir um allan heim urðu rauðglóandi þegar hún dó undir dularfullum kringumstæðum í gær.  Spurningin er, hvers vegna var hún svona fræg ?  Margar ungar konur hafa gifst eldri mönnum til fjár ?  Margir haga sér eins og kjánar þegar þeir eru undir áhrifum ?  Margir hafa fitnað og svo grennst aftur ?  Anna Nicole er svipuð Paris Hilton að þessu leiti, þær eru frægar fyrir að vera frægar.  Manneskjur sem elska sviðsljósið og gera allt til að halda sig þar.  Munurinn á Paris og Anna Nicole er sá að sú síðarnefnda barðist af örvæntingu við að finna leiðir til að koma sér á framfæri, sú fyrri þarf bara að vera til til þess að fá athygli.  En hvað skilja þessar manneskjur eftir sig ?  Nákvæmlega ekki neitt. Því frægðin var bara frægðarinnar vegna.  Það sem mér finnst merkilegt er hve margar svona persónur eru ljóshærðar.  Goðsögninni um heimsku ljóskuna verður seint eytt úr þessum heimi, sama hve margar þeirra falla í valinn með aðstoð lyfja.

Lost snýr aftur

Var að horfa á endursýninguna af Lost þættinum frá mánudeginum.  Fyndið, ég horfði ekki á fyrstu seríuna nema síðustu þættina, en nú er ég alveg föst yfir þessu.  Það er í rauninni lítið að gerast í hverjum þætti en samt getur maður ekki beðið eftir að fá að vita meira.  Jack og Sawyer eru eru nógu sætir til að halda manni við skjáinn líka.  Ég vona samt að framleiðendur þáttanna ætli ekki að draga það í átta seríur eða svo að segja okkur allan sannleikann.  Ef ég á að endast einhverjar seríur í viðbót þurfa þeir að setja inn eitthvað freistandi, s.s. Clive Owen. Þá skal ég horfa þó ekkert annað gerist en að hann sé á skjánum Tounge   Merkilegt annars hve vel þau hafa sloppið við sólbruna þó svo að þau hafi enga sólarvörn að bera á sig.  Og hvað ungabarnið er orðið stórt miðað við að þau eru bara búin að vera þarna í 69 daga...

Inflúensan er komin !

Undanfarin ár hef ég nýtt mér það tilboð atvinnurekandans að fá flensusprautu án endurgjalds.  Minnug innflúensu dauðans sem ég fékk í Danmörku 1999, þegar ég hélt virkilega að mín síðasta stund væri runnin upp, svo slæm var hún.  Reyndar hefði ég getað látið lífið í þessum veikindum af öðrum orsökum, því vinkona mín sem kom að hjúkra mér skildi eftir kveikt á hellu niðri í eldhúsi og það var einskær tilviljun að ég hökti niður og sá hana rauðglóandi og rjúkandi í myrkrinu.  En þetta var nú útúrdúr.  Í ár klikkaði ég á sprautunni.  Ég var að fara í eftirlit þegar boðið var upp á sprautuna en ein var geymd handa mér og hjúkkurnar í vinnunni ætluðu að sprauta mig síðar.  Hmmm.  Ég bara steingleymdi sprautunni.  Mundi stundum eftir henni á kvöldin en þegar ég mætti í vinnuna var hugsunin horfin.   Nú er það of seint !  Innflúensan er komin - það sem verra er - hún er komin heim til mín !  Einkadóttirin horfði á mig í dag með döprum, soðnum hvolpaaugum og tilkynnti mér að hún væri með 40 stiga hita.  Við tók parasetamól sukk og mikið dekur.  Nú sefur hún sætt og rótt og verður vonandi hressari á morgun.  Búin að vera veik í 2 daga, henni finnst það alveg nóg.  Mín mesta skelfing er að ég smitist líka.  Spurning hvort dugi að bryðja hvítlauk og brenna reykelsi til að halda veirunum frá... Krosslegg fingur, tær og leggi og vona að ég sleppi !

Nýir meðlimir Tuborg fjölskyldunnar

Tuborg Grön hefur eignast litla bræður, þá Blå og Hvid.  Ég býð þá hjartanlega velkomna í fjölskylduna og get ekki beðið eftir að kynnast þeim.  Eftir námsárin í Danmörku hef ég haldið góðu sambandi við Tuborg fjölskylduna og Guld og Classic, frændur Grön, hafa fengið að kíkja í heimsókn af og til.  Grön sjálfur er reglulegur gestur, m.a. á bjórkvöldum í vinnunni.  Påskebryg og Julebryg eru fjarskyldari ættingjar sem líta við einu sinni á ári, en alltaf reyni ég að taka hlýlega á móti þeim.  Ég tek frá pláss í ísskápnum fyrir nýju strákana, en best væri auðvitað að skella sér til Köben og hitta þá á heimavelli Smile


mbl.is Blár og hvítur Tuborg til liðs við þann græna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Danskur spurningaleikur...

svava_quizVinur minn í Danmörku sendi mér þetta.  Hahahahaha LoL

Að vera eða ekki vera - vændiskona ?

barMyndin hér til hliðar er af mottu á veitingastað í Shanghai.  Gott að þeir skuli hafa vinalega öryggisverði til að hjálpa manni að komast að því hvort maður sé vændiskona eður ei.  Ætli það sé algengt að inn komi konur sem eru í vafa ?  Og hvernig fara vinalegu öryggisverðirnir að því að komast að sannleikanum ?  Kannski spyrja þeir bara "how much ?" og ef þú asnast til að svara og gefa upp verð - AHA ! Þá ertu dæmd vændiskona.  Maður þyrfti eiginlega að skella sér á þennan veitingastað og fá úr þessu skorið.  Kannski búin að vera vændiskona lengi án þess að vita það.


Umhverfisvernd tekur á sig ýmsar myndir...

Ég er líffræðingur og er fylgjandi hvers kyns umhverfisvernd.  Endurvinnsla úrgangs, endurnýting, lífræn matvæli, orkusparnaður... bara nefndu það.  Ég er orðin hörkudugleg í að flokka, er með poka fyrir dagblöð, plas, málm og umbúðapappa.  Ég verð samt að játa að mér hafði ekki dottið í hug að til væru umhverfisvænar klámmyndir.  Ójá !  Þið lásuð rétt: umverfisvænar KLÁMmyndir.  Þessar myndir eru kallaðar Fuck for Forest og í þeim nýtur fólk ásta úti í guðsgrænni náttúrunni.  Aðgangseyririnn rennur svo í sjóð til verndar regnskógunum.  Nánar um þetta hér.  Held að það væri ekki sniðugt að taka þetta upp hér á Íslandi, í kuldanum hér í lyngvöxnu hrauni.  En allra hörðustu umhverfisverndarsinnar vita þá hvert þeir eiga að leita ef þeim vantar smá örvun :-)

Pirringur dagsins !

Ef það er eitthvað sem ég ekki þoli þá eru það símhringingar frá ótal líknarfélögum sem reyna að pranga inn á mig geisladiskum, bókum eða öðru drasli.  Maður þarf að hlusta á langa og hjartnæma ræðu um málstaðinn og á svo að borga tvöfalt verð fyrir eitthvað sem manni langar ekkert í.  Sama gildir um gíróseðla sem dreift er í öll hús sem með fylgir eitthvað dót s.s. jólakort eða eitthvað í þeim stíl.  Þetta pirrar mig mjög mikið, þarna er reynt að höfða til samvisku fólks - ekki ferðu að nota jólakortin án þess að borga ?  Og ekki hendir þú bara fínum jólakortum ónotuðum ?  Nýjasti anginn af þessu er þegar svokallaðir "valkræfir" gíróseðlar dúkka upp í heimabankanum.  Ótrúleg frekja !  Allt í einu er þarna einhver reikningur sem maður kannast ekkert við og þegar verið er að haka við langan lista af reikningum sem á að borga er auðvelt að ruglast og kippa honum með.  Það gladdi mig því að sjá þessa frétt á mbl.is um að búið sé að kvarta til talsmanns neytenda og hann sé farinn að kanna málið. Mér finnst þetta átroðningur, ef ég vil styrkja líknarfélög vil ég gera það með því að greiða inn á reikning viðkomandi félags.  Þá er enginn símasölukostnaður, prentkostnaður á auglýsingamiðum, gíroseðlum og jólakortum.  Og þá er enginn að troða sér inn í heimabankann minn í þeirri von að ég óvart borgi reikninginn þeirra.  Einu kröfurnar sem eiga að vera í mínum heimabanka eru þær sem ég hef stofnað til sjálf.  Og hananú !


mbl.is Greiðsluseðlar sendir í heimabankann án þess að vara sé pöntuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband