Dásamleg ferð um Norðurland

Hilda á ÓlafsfirðiFyrir rúmri viku skellti ég mér til Ólafsfjarðar með Hildu, Svanhildi systur, Ragnari manninum hennar og sætustu frændum í heimi, þeim Óla og Steinari.  Við gistum í gömlu Hilda og strákarnir í lystigarðinumhúsi rétt fyrir utan bæinn, sem stóð í hlíð fyrir ofan Ólafsfjarðarvatnið.  Frábært útsýni, dásamlega fallegt á kvöldin að horfa út að þorpinu þegar sólin var að setjast, fjöllin spegluðust í vatninu og skýin loguðu í mismunandi litum.  Eigandi hússins er greinilega nokkuð sérvitur, í því var dágott safn af gömlum þvottavélum, eldavélum, hraðsuðukötlum, hrærivélum og vogum.  Það að safna gömlum heimilistækjum er ansi sérstakt Á Siglufirðiáhugamál!  María vinkona býr á Ólafsfirði og bauð hún okkur í kaffi einn daginn, okkur til gleði og ánægju.  Strákunum fannst ekki leiðinlegt að hitta Björn son hennar sem er á sama aldri.  Við ferðuðumst um svæðið vítt og breitt.  Auðvitað var farið inn á Akureyri, borðaður Brynjuís og farið í lystigarðinn.  Svo fórum við inn á Siglufjörð og skoðuðum Síldarminjasafnið.  Það var afar áhugavert, sjá Gamla kaupfélagið á Hofsósigömlu tækin, fatnaðinn og aðbúnað verkafólksins.  Það var ótrúlegt að sjá gamlar ljósmyndir þar sem himinháar tunnustæður þöktu hverja bryggju!  Næst var haldið á Hofsós og þar skoðuðum við Vesturfarasetrið.  Það var mjög áhugavert að sjá sögu fólksins, myndir af nýja lífinu í Ameríku og sjá gömul sendibréf.  Sama dag Í Hríseyjarkirkjufórum við til Dalvíkur og þar fóru allir í sund nema við systur, sem rúntuðu um bæinn og borðuðum ís í staðinn :)  Síðasta daginn okkar fórum við til Árskógssands og sigldum þaðan út í Hrísey.  Þar snæddum við á veitingahúsinu Brekku, töltum um þorpið, skoðuðum Kvöld á Ólafsfirðikirkjuna og hittum ógrynni af stelkum og jaðrakönum í móunum fyrir ofan þorpið.  Á heimleiðinni sáum við Hilda branduglu við Dalvík, gaman að sjá svona sjaldséðan fugl Smile Síðasta daginn, föstudag, var svo brunað í bæinn.  Frábær ferð í alla staði enda fallegt á Norðurlandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband